​Að hjálpa kettlingafullu læðunni þinni að gjóta heima

3.10.2018
Ef styttist í got hjá kettlingafullu læðunni þinni skaltu nýta einföldu leiðbeiningarnar okkar til að undirbúa þig og tryggja að gotið gangi sem best fyrir sig.
Adult cat lying down on a white rug with newborn kittens.

Þegar læða heimilisins á von á kettlingum er mikilvægt að þú sért vel undirbúin/n þegar stóri dagurinn rennur upp. Ef þú velur að hafa gotið á heimilinu þá eru ýmis einföld en mikilvæg atriði sem þú getur nýtt þér til að tryggja að læðunni líði vel, hún sé heilbrigð og geti gotið í streitufríu umhverfi.

Að undirbúa heimilið svo læðan eigi auðveldara með got

Helst ætti kettlingafulla læðan þín að hafa herbergi eða svæði út af fyrir sig við lok meðgöngunnar. Læður geta orðið árásargjarnar á síðustu tveimur vikum meðgöngunnar, svo gott er að hafa læðuna út af fyrir sig og fjarri börnum. Herbergið þarf að vera nokkuð heitt - um 22° C - til að henni líði vel og lítil hætta sé á ofkælingu, auk þess sem best er að hafa rakastig við 65-70%.

Þú ættir að setja upp þægilegan kassa þar sem læðan getur gotið. Til dæmis mætti nota pappakassa sem er nógu stór fyrir hana til að liggja í og með nógu háar hliðar til að kettlingarnir detti ekki út. Fóðraðu hann með plasti og síðan dagblöðum, sem auðvelt er að fjarlægja ef þau óhreinkast, og breiddu svo teppi yfir.

Hreiðurkassinn ætti að vera hlýrri en sjálft herbergið til að styðja við kettlingana á fyrstu dögum lífsins þegar þeir eru hvað viðkvæmastir. Gott er að nota innrauðan lampa, vegna þess að hann dreifir hitanum vel, og stilla á 30° C.

Hvernig geturðu séð hvort læðan sé að fara að gjóta?

Mögulega tekurðu ekki eftir fyrstu stigum gotsins, vegna þess að engir samdrættir eru sjáanlegir. Þess í stað mun læðan virðast eirðarlaus og hegða sér undarlega, t.d. elta þig stöðugt – eða forðast þig. Hún mun jafnframt láta heyra vel í sér og oft snyrta læður sig óhóflega.

Þegar hún er næstum tilbúin í gotið mun hún klóra sér, koma sér fyrir í hreiðurkassanum og mala hátt. Þegar þú tekur eftir rauðleitri útferð mun ekki líða langur tími þar til fyrstu kettlingarnir koma í heiminn ásamt fylgjum – oftast minna en klukkustund.

Adult cat lying down on a white rug by a window with four newborn kittens.

Þegar læðan þín gýtur, er fullkomlega eðlilegt að hún verði óróleg og gefi frá sér hljóð. Kettlingarnir koma venjulega í heiminn með 10 til 60 mínútna millibili. Flestar læður borða fylgjuna og naga naflastrenginn í sundur. Ef tveir klukkutímar líða frá því þú sást útferð frá læðunni og enn bólar ekkert á kettlingum, borgar sig að hafa samband við dýralækni sem getur aðstoðað ef á þarf að halda.

Læður eru duglegar að sjá um allt sjálfar þegar þær gjóta. Það er því best er að þú leyfir henni að hafa sinn hátt á en fylgist samt með henni á um 15 mínútna fresti. Ef læðan verður stressuð, getur hún stöðvað gotið og beðið í marga klukkutíma og jafnvel daga með að gjóta.

Einkenni heilbrigðra nýfæddra kettlinga

Um leið og kettlingarnir koma í heiminn eiga þeir að skríða beint á spena hjá læðunni. Þú skalt samt hafa kettlingamjólk við höndina til vonar og vara. Ef læðan sleikir kettlingana ekki þegar þeir eru búnir að drekka, þarft þú að nudda kviðinn varlega, með rökum klút til að örva meltingu og hjálpa kettlingunum að losa sig. Hafðu hlýtt í herberginu og hafðu lokað inn til læðunnar. Sjáðu til þess að hún fái frið. 15-20% af læðum sem gjóta í fyrsta sinn, breima nokkrum dögum eftir got. Ef læðan fer á flæking í makaleit, eru kettlingarnir einir og varnarlausir.

Best er fyrir læðuna að gjóta heima, í ró og næði. Það er líka best fyrir kettlingana. Ef þú hefur efasemdir um hvernig best er að undirbúa gotið, getur þú rætt við dýralækni og fengið ráð hjá honum.

Efst á síðu

Sérsniðin næring fyrir kettlinginn þinn

Næringarríkt fóður sem styrkir náttúrulegt varnarkerfi kettlingsins og stuðlar að heilbrigðum vexti og þroska meltingarfæranna.

Content Block With Text And Image 1