Með stór, falleg augu og áberandi feld með einstöku mynstri. ROYAL CANIN® Bengal Adult er samsett með næringarþarfir Bengal kattarins í huga. Með því að innihalda hátt próteinmagn og aðlagað fituinnihald stuðlar fóðrið að því að viðhalda vöðvamassa Bengal til að viðhalda mjög virkum lífsstíl. Auðmeltanlegt, próteinríkt mataræði er ráðlagt til að styðja við heilbrigða meltingarstarfsemi í Bengal köttum. Fóðrið inniheldur L.I.P prótein (Low Indigestible Proteins) sérstaklega valin fyrir auðmeltanleika.
Fóðurlögun
Sérhönnuð lögun á fóðurkúlunum sem hentar kjálkum Bengal katta og hvetur þá til að tyggja fóðrið en slíkt "burstar" tennur þeirra og minnkar þar með líkur á myndun tannsteins.
Auðmeltanlegt
Auðmeltanleg prótein (e. LIP; Low Indigestible Proteins) sem stuðla að góðri meltingu. Inniheldur trefjar og fructo-oligo-saccharides (FOS) sem efla varnir meltingarvegar.
Magnað form
Hraustur Bengal er líflegur, virkur og vöðvastæltur. Aðlagað hlutfall próteina (40%) og aðlöguðu fituinnihaldi (18%) til þess að viðhalda vöðvamassa.
Heilbrigður feldur
Góð blanda af ómega-3 og ómega-6 fitusýrum sem stuðla að heilbrigðri húð og glansandi og fallegum feldi.
Þvagfærakerfi
Í fóðrinu er steinefnablandan með þeim hætti að hún styður við heilbrigða nýrnastarfsemi en Bengal tegundinni er hætt við vandamálum í þvagleiðarakerfi.