Munurinn liggur í heilbrigði
Frá 1968 höfum við rannsakað einstakar heilbrigðisþarfir katta og hunda með ítrustu nákvæmni. Á þeim tíma höfum við komist að því að jafnvel smæsti næringarmunur getur haft veruleg áhrif á líf og heilsu gæludýrsins þíns.
Hvað er sérhönnuð næring?
Finndu réttu vöruna
Svaraðu spurningum um gæludýrið þitt
Fáðu sérsniðna ráðleggingu
Hafðu mataræði gæludýranna alltaf uppfært
Sérhannað fóður
Tökum German Shepherd sem dæmi: Við dáumst að hugrekki þeirra, tryggð og greind. Þótt þeir séu miklir að líkamsburðum og bráðgreindir, hafa þeir oft afar viðkvæman maga. Þess vegna hönnuðum við fóður með mjög auðmeltanlegum próteinum og sérstökum trefjum þannig að þeir geti orðið jafn öflugir innvortis þeir eru vitsmunalega og að líkamsburðum.
Að styrkja eðlið
Heilbrigður Jack Russell-hundur getur stokkið allt að sexfalda hæð sína. Hægt er að styrkja ótrúlega öflugt eðli hans með sérvöldum próteinum og andoxunarefnum sem fullnægja þörfum hans.
Sérstakt fóður fyrir sérstakar þarfir
Kjálkar margra gæludýra eru sérstakir í laginu. Það getur, ásamt sérstökum matarvenjum þeirra, gert eigendum erfitt um vik með að fóðra þau. Fóðrið okkar er ekki eingöngu sérsniðið með tilliti til næringarinnihalds heldur er lögun og uppbygging fóðurkúlnanna líka sérsniðin þannig að hægt sé að mæta þörfum ólíkra gæludýra.
Útkoman
Útkoman er næring sem er sérstaklega hönnuð til að mæta heilsufarslegum þörfum af mikilli nákvæmni. Gæludýrið þitt fær heildstætt fóður og rétt hlutföll af næringarefnum og amínósýrum svo það geti byggt upp sterka vöðva, viðhaldið heilbrigðum líkama og styrkt ónæmiskerfið. Það fær alla nauðsynlega orku til að þrífast og lifa sem bestu og heilbrigðustu lífi.
Sérhannað fyrir hvaða sjúkdómsástand sem er
Kattavörur
Sérsniðin næring fyrir vöxtinn
Sérsniðin næring fyrir lífsstíl hvers kattar
Kettir hafa mismunandi lífsstíl og mjög sérstakan smekk. Blöndurnar okkar eru sérsniðnar til að skila nákvæmlega því sem kettirnir þurfa til að styðja við lífsstíl sinn frá fæðingu til eldri ára.
Vörur fyrir viðkvæm gæludýr
Hundavörur
Sérsniðin næring fyrir einstök kyn
Sérsniðin næring fyrir hunda af öllum stærðum
Sérsniðin sjúkdómsnæring
Við höfum búið til næringarblöndur sem styðja við meðferð gæludýrsins og hjálpa því að viðhalda betra heilbrigði til framtíðar.