FBN British Shorthair

FBN British Shorthair

Þurrfóður fyrir kött

Stærðir í boði

2 kg

Hver er réttur skammtur?
VÖRUUPPLÝSINGAR

ROYAL CANIN® British Shorthair Adult er sérhannað fóður fyrir British Shorthair ketti, sem hafa kraftmikinn og vöðvamikinn líkama sem krefst réttrar næringar. Vegna þungbyggðrar líkamsgerðar inniheldur fóðrið aðlagað magn próteina til að viðhalda vöðvamassa. Það er einnig auðgað með L-karnitíni, sem styður heilbrigða fitubrennslu. Omega-3 fitusýrur (EPA og DHA) hjálpa til við að styrkja bein og liðamót, en táurín og omega-3 fitusýrur styðja heilbrigt hjarta.

KOSTIR

Bein og liðamót

British Shorthair er nokkuð stór tegund og því er aukin hætta á vandamálum í liðum. Í þurrfóðrinu er nákvæm blanda af fjölómettuðum fitusýrum (EPA og DHA) sem smyrja liði og draga úr liðverkjum. Sömuleiðis inniheldur fóðrið glúkósamín og kondróítin en niðurstöður rannsókna á báðum þessum efnum gefa til kynna að þau séu liðuppbyggjandi og viðhaldi þar með heilbrigðum liðamótum.

Hjartaheilsa

Fóðrið inniheldur tárín, L-karnitín og ómega-3 fitusýrur sem stuðla að heilbrigðum hjartavöðva.

Vöðvamassi

British Shorthair er sterkbyggð tegund og hefur aukna próteinþörf vegna aukins vöðvamassa. Fóðrið er því próteinríkt til að stuðla að heilbrigðum vöðvamassa.

Tannheilsa

Lögun fóðurkúlnanna þannig að bugðóttar línur kúlnanna aðstoða breiðkjálka tegundarinnar við að ná kúlunum upp og hvetur þá til að bryðja sem stuðlar að bættri tannheilsu.

Þvagfæraheilsa

Steinefnin í fóðrinu hvetja til drykkju og minnka álag á nýrun sem minnkar hættuna á myndun kristalla og síðar meira mögulegra steina í þvaginu.

NÆRINGARUPPLÝSINGAR