Hætturnar sé hundurinn í ofþyngd

Að minnsta kosti 20% hunda í iðnvæddum löndum eru taldir vera í offitu. Offita eykur gífurlega hættuna á langtíma áhrifum á heilsu hundsins. Lærðu meira um þessar áhættur og hvernig þú getur hjálpað hundinum þínum í greininni hér að neðan. 
Adult dogs running through a field of long grass

Offita er orðið algengt vandamál meðal hunda; fjöldi rannsókna hafa sýnt fram á að um einn af hverjum fimm hundum í iðnvæddum löndum teljast vera í offitu. Ef hundurinn þinn er í slíku líkamsástandi er hann í aukinni hættu á ýmsum langvarandi sjúkdómum sem er mikilvægt að vera meðvitaður um.

Líkurnar á að hundurinn þinn teljist vera í offitu

Hundur telst vera í offitu þegar hann er er á milli 15-20% yfir ákjósanlegri þyngd, eða ef ómögulegt er að finna rifbein hundsins þegar þreifað er eftir þeim. Tegund, genasamsetning, aldur, tegund, lífsstíll og matarræði ásamt því hvort þeir hafi verið geldir eða ekki hefur áhrif á áhættu á að þróa með sér offitu ástand.

Til dæmis eru kvenkyns hundar líklegri til þess að bæta á sig þyngd en offita er líklegri meðal geldra hunda. Hegðundarvandamál í kringum mat og fæðuhegðun eiganda er einnig líkleg til að hafa meiriháttar áhrif á þyngd hundsins.

Áhrif ofþyngdar og offitu á líf hunda

Sé hundurinn þinn í ofþyngd eða offitu, er hann í hættu á að þróa með sér alvarlega og jafnvel lífshættulega sjúkdóma:

  • Styttri lífslengd
  • Hjarta- og öndunarfæravandamál
  • Sykursýki
  • Viðkvæmara ónæmiskerfi og þannig aukin hætta á sýkingum og öðrum veikindum
  • Liðvandamál á við gigt
  • Hjarta- og æðasjúkdómar
  • Myndun calcium oxalate þvagsteina

Hundar sem þjást af offitu eru einnig líklegri til þess að upplifa mæði, minni hvatningu til hreyfingar, minni orku og reyna minna á sig í leik og þjálfun en hundar í heilbrigðri þyngd.

Adult Golden Retriever lying down on an examination table in a vets office.

Af hverju veldur offita slíkum vandamálum?

Þegar hundur telst vera í offitu, byrjar líkami hans að geyma fóður og næringarefni sem fituforða þar sem hundurinn eyðir minni tíma í leik og hreyfingu og brennur því minna en hann innbyrðir. Þegar slík söfnun fituforða á sér stað byrjar forðinn að leggjast á innri líffæri (t.d. á lifrina) sem þýðir að líffærin geti ekki starfað eðlilega. Fitan getur einnig byrjað að húða innri líffæri og setja aukinn þrýsting á þau, slíkt dregur úr heilbrigðri virkni þeirra. 

Þegar hundurinn ber aukna þyngd á sér verður erfiðara fyrir hann að hreyfa sig; liðheilsa þeirra dvínar því þeir eru ekki gerðir til þess að bera aukna þyngd. Með tímanum getur þetta orðið að slæmum vítahring þar sem hundurinn veigrar sér við að hreyfa sig þar sem það er óþægilegt en heldur áfram að innbyrða sama magn fæðu og bætir á sig aukinni þyngd.

Hvernig er best að hjálpa hundinum þínum

Fyrsta skrefið í að hjálpa hundinum þínum er að fara með hann til dýralæknis, dýralæknirinn getur hjálpað til við að greina á hvaða stigi ofþyngdin er og hver næstu skref eru. Það er mikilvægt að eigandi skuldbindi sig að hjálpa hundinum að missa þyngd, það þýðir að fylgja matarskipulagi, forðast að gefa hundinum aukabita, matarafganga og að fylgjast vel með þyngd hundsins. Dýralæknirinn getur hjálpað til við að ráðleggja hvers konar matarskipulag virkar byggt á því hvaða fóðri hann mælir með fyrir hundinn.

Með því að hjálpa hundinum að léttast, muntu sjá hundinn verða heilbrigðari og virkari sem hjálpar þeim að eiga lengra og betra líf.

Líkaðu við og deildu þessari síðu