
Sannaðar niðurstöður
Niðurstöður innanhúsrannsóknar Royal Canin gaf til kynna að 97% eigenda þeirra 60 hunda sem tóku þátt í rannsókninni töldu að það væri sjáanlegur munur á hreyfigetu og líðan hundanna sinna eftir að þeim hafði verið gefið Maxi Joint Care eingöngu í heilan mánuð. Svo má líka geta að frá því að Maxi Joint Care kom til Íslands hefur það verið eitt allra vinsælasta fóðrið úr Care línu Royal Canin.
Liðheilsa
Inniheldur öfluga blöndu liðuppbyggjandi og liðverndandi efna; vatnsrofið kollagen, kondróítin, fjölfenóla úr grænu tei en fjölfenólar geta leikið lykil hlutverk í því að vernda liðina frá skaðvöldum eins og sindurefnum (oxarar, e. oxidants). Sömuleiðis inniheldur fóðrið fjölómettaðar ómega-3 fitusýrur sem smyrja liði og draga úr verkjum.
Hvernig getur þú hjálpað hundinum þínum ?
Haltu hundinum þínum í reglulegri hreyfingu, en forðastu að setja mikið álag á liði. Það er einnig mikilvægt að halda hundinum í kjörþyngd, þar sem aukakíló valda auknu álagi á liðum hans. Ef þú hefur einhverjar spurningar eða áhyggjur af heilsu hundsins þíns skaltu hafa samband við dýralækninn þinn.