Þegar þú tekur hvolpinn þinn heim
Hver er rétti aldurinn til að taka hvolpinn þinn heim?
Ef þú tekur hann of fljótt missir hann af þessu mikilvæga námstímabili, sem gæti haft áhrif á líkamlega og tilfinningalega velferð hans til framtíðar. En ef þú tekur hann frá móður sinni og systkinum mikið seinna en við 10 vikna aldur muntu hafa misst af stórum hluta félagsmótunarstigsins.
Hvenær er best að koma með hvolpinn heim?
Ertu tilbúin/n til að sækja hvolpinn þinn?
Með því að tryggja að þú sért vel undirbúin/n muntu hjálpa hvolpinum þínum aðlagast nýja heimilinu og fjölskyldunni á ánægjulegan og öruggan hátt. Ertu ekki alveg tilbúin/n? Fáðu frekari upplýsingar um hvernig þú getir undirbúið komu hvolpsins þíns.
Spurningar sem þú getur spurt ræktanda hvolpsins
- Er hvolpurinn farinn að borða eingöngu fasta fæðu?
- Hvaða fóður fær hann og hversu oft þarf hann að borða?
- Er hann farinn að læra að gera þarfir sínar úti og hvernig gengur það?
- Hvernig er dag- og næturrútínan hjá hvolpinum
- Er hann búinn að fara í dýralæknaskoðun?
- Hafa einhver heilsufarsvandamál komið upp?
- Er búið að bólusetja hann og ef svo er, hvenær á að endurbólusetja hann?
- Hvenær fékk hann ormalyf?
- Er hann örmerktur?
- Hvaða umhverfisþjálfun er hann búinn að fá?
- Hvernig er geðslag foreldranna og eru heilsufarsvottorð þeirra tiltæk?
Hvað skal taka með þegar hvolpurinn er sóttur
Að koma með hvolp heim - hvernig skal hafa ferðina
Áður en þú ferð frá ræktandanum
Gakktu úr skugga um að þú hafir öll gögn og hafir spurt að öllu sem þér lá á hjarta. Það er ekki gott að gefa hvolpinum að borða skömmu áður en þið farið því hann gæti orðið bílveikur á leiðinni heim. Það er skynsamlegt að fara með hvolpinn í stutta gönguferð og athuga hvort hann vill gera þarfir sínar áður en þið farið heim. Gættu þess, þegar þú setur hálsólina á hvolpinn, að hann nái ekki að smeygja sér úr henni. Ef þú kemur tveimur fingrum undir ólina er hún hæfilega hert.
Að koma sér fyrir í bílnum
Ef einhver er með þér getur hann setið aftur í með hvolpinn á hnjánum, á sætinu eða á gólfinu. Ef þú ert ein/n á ferð verður hvolpurinn að ferðast í búri. Handklæði eða leikfang með lykt af móðurinni nýtast vel til að róa hvolpinn á þessum tímapunkti.
Ferðalagið
Ef hvolpurinn vælir eða geltir, þótt þú hafir gert allt til að láta honum líða vel, skaltu hughreysta hann rólega. Ef ferðalagið er langt skaltu gera hlé á akstrinum og leyfa hvolpinum að gera þarfir sínar, borða eða drekka.
Þegar þið komið heim
Byrjaðu á að fara með hvolpinn út í garð svo hann geti gert þarfir sínar. Farðu inn með hann í rólegheitum og hughreystu hann ef á þarf að halda.