Að húsvenja hvolp:
Fæstir hvolpar eru húshreinir þegar þeir fara á ný heimili. Það reynir vissulega á þolinmæðina en þetta er líka frábært tækifæri til að tengjast gæludýrinu þínu.
1. Endurtekning
Að gera hlutina á sama tíma daglega, hvort sem það eru fóðrun, göngutúrar eða svefn, hjálpar hvolpinum að koma sér upp reglulegri rútínu.
2. Stjórnun
Með því að hafa hvolpinn þinn í taumi þegar þú ferð með hann að gera stykkin sín tryggirðu að hann ráfi ekki burt og getur farið á staði þar sem engin truflun er til staðar
3. Samkvæmni
Ef þú notar alltaf sama stutta orðið rétt áður en hvolpurinn þinn pissar, eins og „fínn“ eða „pissa,“ tengir hann athöfnina við orðið.
4. Verðlaun
Hrósaðu hvolpinum þínum þegar hann gerir stykkin sín með nammi eða hrósi til að láta hann vita að þú sért ánægð/ur með hann.
Sérfræðiráð um að húsvenja hvolp
Hér eru fimm ráð til að byrja að venja hvolpinn:
Aðeins í einu eða tveimur herbergjum
Hafðu hvolpinn bara í einu eða tveimur herbergjum, þar sem fjölskyldan ver mestum tímanum. Þannig geturðu fylgst vel með honum.
Verðu tíma þar sem hann sefur
Ef þú getur ekki vaktað hann, skaltu hvetja hann til að sofa í búrinu sínu. Hvolpar gera síður þarfir sínar þar sem þeir sofa.
Reglulegur fóðrunartími
Gefðu hvolpinum þínum að borða á ákveðnum tímum, svo hann venjist sömu rútínunni.
Farðu oft út
Farðu oft út með hvolpinn yfir daginn, eftir máltíðir og lúra. Og farðu með hann á sama staðinn í hvert skipti svo hann þekki sína eigin lykt.
Þefað af gólfinu
Ef hvolpurinn þinn snýr sér í hringi og þefar af gólfinu gæti það þýtt að hann þurfi að létta á sér.
Hvað skal gera þegar slys henda
Þjálfun hvolpsins
Grunnþjálfun er mikilvægur liður í umhverfisþjálfun hvolpsins. Því betri umhverfisþjálfun sem hvolpurinn þinn fær þeim mun heilbrigðari og ánægðari verður hann.