Helstu næringarefni fyrir hvolpa

Við veljum innihaldsefni út frá næringarfræðilegri samsetningu, gæðum og sjálfbærni. Þessi innihaldsefni nýtast til að tryggja hvolpum nauðsynleg næringarefni fyrir heilbrigðan vöxt og þroska. Rétt eins og flókið púsluspil inniheldur öll nauðsynleg púsl til að mynda heildarmyndina veitir heildstætt mataræði í góðu jafnvægi nákvæma samsetningu þeirra næringarefna sem hvolpurinn þarf til að þroskast á heilbrigðan hátt.

Brown Labrador Retriever puppy standing indoors next to a stainless steel feeding bowl
Golden Retriever puppy running outdoors in grass

Þroskaþörf hvolpa

Þarfir hvolpa sem eru að þroskast eru mjög frábrugðnar þörfum fullorðinna hunda og líkjast ekkert þörfum mannfólks. Mataræði þeirra verður að sjá þeim fyrir næringarefnunum sem nauðsynleg eru líkamanum og réttri næringarefnablöndu til að líkaminn þroskist og vaxi á réttan hátt. Einnig verður mataræðið að taka tillit til óþroskaðrar meltingar, ónæmis og tannvaxtar. Sérsniðin næringarblanda styður við vöxt líkamans, orkuþörf og virkni ónæmiskerfisins.

Grundvallarkröfur til hvolpafóðurs

Mikil orka stuðlar að vexti

Sérsniðið að stærð munnsins og tönnum

Að styrkja óþroskað ónæmiskerfi

Hjálpar vitsmuna-, beinagrindar- og frumuþroska

Auðmeltanlegt

Kolvetni

Þegar talað er um kolvetni er einkum átt við sykrur, trefjar og sterkju. Kolvetni efla líkamsstarfsemi hunda og katta. Sykrur og sterkja í ROYAL CANIN® fóðrinu eru góður og auðmeltanlegur orkugjafi fyrir hvolpa sem eru að vaxa.

Trefjar

Fæðutrefjar má finna í efnum sem líkjast kolvetnum á borð við pektín, sellulósa og lignín. Plöntur eru helsta uppspretta trefja, til dæmis heil korn, rótargrænmeti, ávextir og hleypiefni. Takmarkað magn af fæðutrefjum í mataræði hvolpsins getur verið gagnlegt til að koma í veg fyrir magavandamál á borð við niðurgang og hægðatregðu.

Fita

Fita er einn af mikilvægustu orkugjöfunum og hún gefur fóðrinu líka gott bragð og góða áferð. Auk þess sem fitan er orkugjafi (lípíð) eru í henni mikilvægar fitusýrur sem eru nauðsynlegar fyrir eðlilega líkamsstarfsemi. Fitan bætir líka feldgæði og hefur góð áhrif á taugakerfið.

Prótein

Prótein gegna mikilvægu hlutverki í þroska kettlingsins og stuðla að uppbyggingu og endurnýjun vefja, vöðva og beina. Prótein er dýrmætt hráefni, bæði í fæðukeðju manna og dýra og það ætti að nota með eins skilvirkum hætti og mögulegt er. Prótein samanstanda af hundruðum (eða þúsundum) amínósýra.

20 amínósýrur byggja upp prótein og þeim er skipt í tvo flokka: Lífsnauðsynlegar og ólífsnauðsynlegar. Líkami kettlingsins getur ekki framleitt amínósýrur í nægilegu magni til að tryggja eðlilega líkamsstarfsemi og þroska. Þess vegna verður hann að fá þær úr fóðrinu. Líkaminn getur myndað ólífsnauðsynlegar amínósýrur en þar sem þær eru nauðsynlegar til að viðhalda heilbrigðri líkamsstarfsemi ætti fóðrið líka að innihalda þær.

Steinefni

Tvær gerðir af steinefnum eru nauðsynlegar fyrir eðlilegan þroska. Meginþættir eins og kalsíum, fosfór og kalíum tryggja að ákveðin lykilvirkni geti átt sér stað í líkama hvolpsins, þar á meðal heilbrigður beinvöxtur, miðlun taugaboða og efnaskipti í vöðvum. Snefilefni eins og járn, kopar og mangan stuðla meðal annars að heilbrigðri húð ásamt heilbrigðum beinum, blóði og feldi.

Vítamín

Vítamín gegna líffræðilega nauðsynlegu hlutverki og hafa áhrif á þroska. Vítamín hafa meðal annars áhrif á:

  • Ónæmiskerfi og vitsmunastarfsemi
  • Frumustarfsemi og endurnýjun fruma
  • Bólgur og þau eru bólgueyðandi
  • Fitubrennslu
  • Blóðstorknun
    Starfsemi heila og lifrar

Vítamín skiptast í tvo flokka: Vatnsleysanleg og fituleysanleg. Líkami hvolpa ræður ekki við að geyma vatnsleysanleg vítamín eins og B vítamín, einkum þíamín og ríbóflavín. Þess vegna er brýnt að hvolpar fái þessi vítamín í fóðrinu.

Black Labrador Retriever puppy lying down outdoors next to a white bowl

Vatn

Dýr innbyrða stærstan hluta af vökva með því að drekka. Þau fá þó líka vökva eftir öðrum leiðum. Þau fá líka vatn í gegnum fóðrið og fer magnið eftir vatnsinnihaldi fóðursins. Auk þess myndast vökvi við næringarupptöku. Þegar hvolpur nýtir til dæmis eitt gramm af lípíði, myndast rúmlega eitt gramm af vatni í líkamanum.

Fóður með réttri samsetningu næringarefna

Fæðið sem þú gefur hvolpinum þínum hefur áhrif á heilsu hans og matarvenjur það sem eftir er ævinnar. Það er því mikilvægt að tryggja honum hollt mataræði á þessu tímabili. Næringarfræðilega heildstætt mataræði í góðu jafnvægi, sniðið að stærð hvolpsins og kyni skiptir lykilmáli í því. Til að fá frekari ráð og upplýsingar um val á viðeigandi mataræði fyrir gæludýrið þitt skaltu tala við dýralækninn þinn eða finna dýralækni til að ráðfæra þig við.

Finna dýralækni
Two puppies sitting outdoors eating from a feeding bowl

Hvolpavörurnar okkar

ROYAL CANIN® hvolpanæring eflir vöxt og þroska með því að veita öll þau næringarefni sem hvolpurinn þarfnast fyrsta árið.

Lestu meira um fóðrun

Fóðrið sem þú gefur hvolpinum þínum hefur áhrif á heilsufar hans og matarvenjur alla ævi. Það skiptir höfuðmáli að á þessum aldri borði hvolpurinn þinn heilsusamlegt fóður sem fullnægir næringarþörf hans, fóður sem er sérstaklega hannað fyrir hunda af hans tegund og stærð.

Fóðrun hvolpsins
Black Labrador Retriever puppy eating from a red bowl