Undirstöðuatriði varðandi feldhirðu á hvolpum

Ef hvolpurinn venst því að vera handfjatlaður frá unga aldri, verður feldhirða auðveldari það sem eftir er ævinnar. Hver hundategund er snyrt með sínum hætti og þekking á því sviði er lykillinn að því að þú getir viðhaldið feldinum heilbrigðum.

Poodle puppy sitting black and white

Snyrting hefur þá augljósu kosti í för með sér að hún heldur feldi hvolpsins heilbrigðum, og augum, eyrum og snoppu hans hreinum. En þar að auki hjálpar hún þér að þekkja hvernig húð hvolpsins lítur út þegar hún er heilbrigð, sem auðveldar þér að taka eftir því ef eitthvað er ekki eins og það á að vera.

Dachshund puppy being given a bath
Miniature Poodle puppy being washed by owner

Það er góð hugmynd að venja hvolpa á að vera handfjatlaðir frá unga aldri. Ef hvolpurinn venst því í rólegheitunum að láta snyrta sig frá unga aldri mun það síður verða streituvaldandi fyrir hann og einfaldara fyrir þig síðar, sem gerir þér kleift að sinna umönnun hans á auðveldari hátt.

Gúmmíbursti

Notaður til að losa dauða húð og dauð feldhár á snögghærðum dýrum

Slikkerbursti

Hann er notaður til að losa óhreinindi úr feldi og losa hár úr undirfeldinum. Hann er frábær til að snyrta hunda með hrokkinn eða grófan feld.

Pinnabursti

Notaður til að losa varlega um hnúta eða flækjur, sem eru sérstaklega algeng í síðhærðum eða gljáandi feldum.

Mjúkur hárbursti

Hann er notaður til að losa óhreinindi úr feldi hundsins þegar búið er að bursta feldinn.

Gróf greiða

Þægilegt er að nota grófa greiðu við snyrtingu á skotti og þófum

Reytihnífur

Notaður til að reyta strýhærða hunda fjórum til fimm sinnum á ári. Best er að hundasnyrtir noti reytihnífinn

Naglaklippur

Sérhæfðar naglaklippur fyrir hunda eru hannaðar til að hjálpa þér að klippa neglur hvolpsins án þess að meiða hann

Tannbursti og tannkrem

Tannkrem fólks hentar hvorki hvolpum né fullorðnum hundum og því er best að nota sérstakt hundatannkrem

Hundasjampó

Húð hunda er viðkvæm og sýrustig hennar er ólíkt sýrustigi mannshúðarinnar. Þess vegna þarf að nota sérstakt hundasjampó fyrir húð og feld hunda.

Næring og umhirða feldsins

Það sést vel á feldinum hvernig fóður hundurinn fær. Glansandi mjúkur feldur og heilbrigð húð eru merki um að hvolpurinn fái Omega 3 og 6 í fóðrinu ásamt amínósýrum. Á hinn bóginn er líflaus og rytjulegur feldur vísbending um að hann fái ekki nauðsynleg næringarefni úr fóðrinu. Sérsniðið hvolpafóður er fyrsta skrefið í átt að heilbrigðum feldi hvolpsins þíns.

Husky puppy playing with a ball on a striped blanket

Feldhirða hvolpsins

Hvort sem hvolpurinn er síðhærður eða ekki, þarf hann ákveðna feldhirðu til að koma í veg fyrir óþægindi í húð og einnig til að koma í veg fyrir að feldurinn þæfist. Hundar geta farið úr hárum allan ársins hring en hárlosið er yfirleitt meira á vorin og haustin. Hægt er að ná burt lausum feldhárum með því að bursta feldinn reglulega og baða hundinn. Það fer eftir feldgerðinni hversu oft þarf að bursta hann og hvaða áhöld henta best.
Dalmatian puppy running outdoors in a garden

Snöggur feldur

Snögghærðir hundar eins og Dalmatian, German Shorthaired Pointer og Great Dane þurfa ekki eiginlega snyrtingu en þó þarf að bursta yfir feldinn einu sinni til tvisvar í viku. Ef feldurinn er burstaður upp á við, með gúmmíbursta, losnar um dauða húð og dauð hár. Þetta má síðan bursta úr feldinum mjúkum bursta og er þá burstað í sömu átt og hárin liggja.

German Shepherd puppy sitting outdoors in grass

Stutt til meðalsítt hár

Kyn með stutt til meðallangt hár eru meðal annars Golden Retriever, German Shepherd og Boarder Collie. Bursta ætti slík hundakyn annan hvern dag vegna þéttleika feldsins, sem getur verið samsettur af bæði yfir- og undirfeldi.
Notaðu sleipari bursta til að bursta í gagnstæða átt við feldinn til að losa eins mikið af dauðu hári og húð og mögulegt er og hreinsa undirfeldinn. Síðan má nota stífari bursta í sömu átt og feldurinn liggur til að fjarlægja þessar leifar.
Nota má grófa greiðu á skottið og loppurnar til að fjarlægja varlega leifar og flækjur.

Yorkshire Terrier puppy running outdoors through yellow flowers

Síðhærðir

Síðhærðir feldir eru vissulega fallegir, en nauðsynlegt er að bursta þá daglega. Það getur tekið allt að klukkustund á dag fyrir fullorðna hunda af Afghan Hound-kyni, svo dæmi sé tekið. Notaðu slikkerbursta og burstaðu í sömu átt og hárin liggja til að losa hnúta og flækjur. Vegna þess hve hárið er sítt getur þetta togað í húðina og því skaltu bursta varlega.
Með því að nota stífari bursta á hundakyn sem er með silkimjúkan feld, eins og t.d. Yorkshire Terrier, fær feldurinn aukinn gljáa. Hægt er að nota vírbursta til að fjarlægja óhreinindi af hundakynjum með þykkri undirhúð, eins og t.d. Rough Collie.
Með því að nota greiðu með víðu bili má losa hár undir bringu og fótleggjum. Hárið má snyrta í jafna lengd með skærum, sem einnig er hægt að nota til að fjarlægja hár sem líklegt er að myndi hnúta eða dragi í sig óhreinindi.

Schnauzer puppy standing outdoors in yellow flowers

Grófur feldur

Grófan feld eins og á Irish Terrier og Schnauzer þarf að reyta fjórum til fimm sinnum á ári. Það er hægt að gera með reytihníf og þá eru dauðu hárin látin milli hnífsins og þumalfingurs. Ef rétt er að verki staðið finnur hundurinn ekkert til. Þú ættir samt að ráðfæra þig við hundasnyrti áður en þú byrjar að snyrta hundinn með þessum hætti.

Bichon Frise puppy standing outdoors in grass

Hrokkinn feldur

Poodle, Bichon Frise og aðrir hrokkinhærðir hundar þurfa annars konar feldhirðu en aðrar hundategundir. Þeir fara minna úr hárum en aðrir hundar og eru því oft taldir minni ofnæmisvaldar. Á hinn bóginn hefur feldur þeirra tilhneigingu til að flækjast meira en feldur á öðrum tegundum og því þarf að bursta hann daglega.
Burstaðu varlega úr feldinum með slikkerbursta og greiddu úr öllum flækjum, alls staðar á líkamanum. Hugaðu sérstaklega að fótleggjum, þófum og svæðinu undir kviðnum þar sem gróður og annað getur safnast fyrir.

Að baða hvolpinn

Ef hvolpurinn þinn hefur gaman af því að synda eða verður skítugur í gönguferðum, þarf hann líklega að fara reglulega í bað. Síðhærðir hundar þurfa oftar á baði að halda til að tryggja að feldurinn haldist hreinn.

Að baða hvolp

Það á ekki að baða hvolpa of oft því það getur breytt náttúrulegu sýrustigi húðarinnar og þurrkað feldinn. Þegar hvolpurinn stálpast, skaltu baða hann þegar á þarf að halda.

Jack Russell Terrier puppy having a bath
Jack Russell Terrier puppy being rinsed in a bath

Að baða hvolp

  • Láttu hvolpinn venjast baðinu án vatns, leyfðu honum að þefa af því og hrósaðu honum á meðan
  • Láttu volgt vatn renna í baðið til að tryggja að hvolpurinn brenni sig ekki og settu hann smám saman út í aftur
  • Bleyttu feldinn allan og settu í hann sérstakt hvolpasjampó en passaðu þig á að ekkert fari í augun
  • Haltu áfram að hrósa hvolpinum og hughreysta hann allan tímann
  • Skolaðu vandlega með miklu vatni en geymdu höfuðið þangað til síðast til að koma í veg fyrir að hann hristi sig

Hvernig þurrka skal hvolpafeld

Eftir baðið skaltu nudda hvolpinn þinn hraustlega með handklæði og hafa hann í hlýju herbergi þar til hann hefur þornað almennilega. Á sumrin er hægt að þurrka hvolpinn í garðinum eða fara með hann í göngutúr, svo lengi sem hann tekur ekki upp á því að velta sér upp úr moldinni.

Hárþurrka gæti verið hentug fyrir hunda með krullaðan feld, en þá þarf að passa sig á að brenna ekki hundinn og bursta ætti hárið samtímis til að forðast flækjur.

Jack Russell Terrier puppy with a white towel on its head

1. Cleaning your puppy's ears

Your vet will be able to recommend the most appropriate cleaning routine for your puppy's ears, based on type. Dogs have either dropped or pricked ears, and those with dropped may require more care than other breeds. If you are asked to clean your dog's ears at home, you should do so with a specially formulated solution. Carefully squeeze a few drops into your puppy's ear canal, then very gently massage the base of their ear for around 30 seconds. If there is any solution remaining, wipe the ear carefully with cotton wool.

2. Caring for your puppy's teeth

Puppies may start to suffer from plaque build-up when they start to eat solid food. If this is not removed, it can result in tartar and inflammation of the gums. The best way to care for your puppy's teeth is by brushing them several times a week with a toothbrush and toothpaste specifically designed for dogs. Chewing bars may also slow down the formation of plaque and tartar. Ideally, a puppy should be given no more than two or three of these chewing bars a week to help prevent plaque and tartar build-up. It's important to make sure these are taken into account in the puppy's daily calories count to avoid excess weight gain Ask your vet which type might be best for your puppy.

3. How to clip your puppy's nails

Dogs have two types of nail - dewclaws and toenails. The dewclaw is often located on the side of their front legs, while the toenails are found on the paws. Your puppy's toenails should naturally wear down as they walk across hard surfaces, but if they grow too long you may need to clip them.

Hvernig á að klippa klær á hvolpum?

Klærnar ættu að eyðast að sjálfu sér þegar hvolpurinn gengur á hörðu undirlagi. Ef þær vaxa of mikið gætir þú þurft að klippa þær. Það þarf að klippa klærnar varlega til að klippa ekki æðarnar sem eru í klónum. Klipptu klærnar með sérstökum klóklippum. Byrjaðu neðst og klipptu smám saman meira af klónni. Best er að klippa klærnar á ská þannig að þær myndi 45 gráður við gólfið. Það þarf að klippa klærnar vandlega þannig að ekki myndist sprungur.

Ef þú ert ekki viss um hvernig á að klippa klærnar á hvolpinum þínum skaltu biðja dýralækni að sýna þér hvernig best er að bera sig að.

Golden Retriever puppy having their nails clipped in a bathroom

Hvolpavörurnar okkar

Royal Canin hvolpanæring styður vöxt og þroska með því að veita öll næringarefnin sem eru nauðsynleg fyrir þarfir þeirra á fyrsta ári ævinnar.